Help!
Saturday, 19 May 2012
UMF Þristur
 
Forsíða

Framundan
Gakktu í bæinn





Týnt lykilorð?
Ekki með aðgang? Búðu til einn
cheap software downloads oem
Hlaupamót UÍA
Skrifað af Administrator   
Monday, 31 May 2010
Hlaupamót UÍA fer fram á Vilhjálmsvelli kl 18.00 fimmtudaginn 3. júní. Keppt verður í 80 m hlaupi, 200 m hlaupi, 60/80/100/110 m grindarhlaupi og 1500 m hlaupi í flokkum 11-12 ára, 13-14 ára, 15-16 ára og 17 ára og eldri. Mótið er hluti af mótaröð UÍA þar sem keppendur safna stigum og verða stigahæstu einstaklingum í hverjum flokki veitt verðlaun í lok sumars. Skráning fer fram á staðnum en einnig er hægt að skrá sig hjá Hildi Bergsdóttur í síma 6917219. Skráningargjald er 500 kr og greiðir Þristur fyrir sína iðkendur. Vonumst til að sjá sem flesta taka á sprett.
 
Knattspyrnulið Þristar
Skrifað af Administrator   
Monday, 24 May 2010
Æfingar eru hafnar hjá karlaliði Þristar í knattspyrnu. Æfingar fara fram á Fellavelli kl 21 á mánudags- og fimmtudagskvöldum. Allir velkomnir.
 
Kaffihúsaskákmót KAABER og UMF Þristar
Skrifað af Administrator   
Friday, 21 May 2010

Kaffihúsaskákmót KAABER og UMF Þristar fór fram í Hallormsstaðaskóla 15. maí síðastliðinn. Þátttaka var þokkaleg og keppnin jöfn og spennandi.

Keppt var í flokkum 16 ára og yngri og 17 ára og eldri og hlutu sigurvegarar, að vanda, glæsilega bikara frá KAABER og fengu þar að auki til varðveislu farandbikara. 

Í yngri flokki sigraði Nökkvi Jarl Óskarsson, eftir æsispennandi einvígi við silfurhafa flokksins Ágúst Jôhann Ágústsson, þriðji varð Mikael Máni Freysson.

Í eldri flokki sigraði, einnig eftir spennandi viðureignir, Magnús Valgeirsson, annar varð Guðmundur Ingvi Jóhannsson og bronsið hlaut Hjálmar Jôelsson.

Að venju var boðið upp á gómsætar veitingar og rjúkandi Rúbín kaffi frá KAABER.

UMF Þristur þakkar KAABER fyrir stuðninginn og keppendum fyrir skemmtilegt mót.

 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 4 af 72

Top!